Ég heiti Guðjón Ingi Sigurðsson og er þjálfarinn á bakvið Trainer, ég er faðir, A-týpa, hress og skemmtilegur en mér finnst gaman að hreyfa mig og ekki síst matarkarl.
Ég kem úr afreksíþróttum í handbolta og er menntaður sem ÍAK einka- og styrktarþjálfari.Ég hef starfað við þjálfun í yfir 13 ár og unnið með mjög fjölbreyttum hópi fólks. Allt frá byrjendum sem eru að stíga sín fyrstu skref, upp í lengra komna og íþróttafólk sem vill markvissar framfarir.
Ég stofnaði Trainer í janúar 2015 og hef tekið á móti viðskiptavinum óslitið síðan þá en í meira en áratug hef ég aðstoðað fjölbreytta þarfir viðskiptavnatil að ná sem bestum árangri á sem skilvirkastan hátt.
Árið 2018 stofnaði ég eigin þjálfunarstöð og byggði þar upp sterkt samfélag fólks með sameiginlegt markmið: að vaxa, dafna og líða vel í eigin líkama. Þar fékk ég að fylgja fólki í gegnum ólíkar vegferðir, setja ramma utan um þjálfun sem er fagleg og örugg, og leggja áherslu á gæði, góðar hreyfingar og stöðugleika til lengri tíma.
Nálgunin mín í þjálfun
Góð þjálfun snýst um gæði, stöðugleika og skýra framkvæmd. Réttar hreyfingar, góð tækni og álag sem líkaminn ræður við skiptir meira máli en að gera allt sem mest eða sem hraðast.
Mestu máli skiptir að þjálfunin gangi upp í raunveruleikanum. Hún á að passa inn í lífið eins og það er, með vinnu, fjölskyldu og öllu sem fylgir. Þegar þjálfun verður hluti af rútínunni verða framfarirnar bæði stöðugri og varanlegri.
Að lokum snýst þetta ekki bara um útlitið, heldur vellíðan og sjálfstraust í daglegu lífi.
Ég vinn með fólki á öllum aldri sem vill verða sterkara, orkumeira og líða betur, en hefur ekki tíma eða áhuga á öfgum eða flóknum kerfum.
Góð þjálfun snýst um gæði, stöðugleika og skýra framkvæmd. Réttar hreyfingar, góð tækni og álag sem líkaminn ræður við skiptir meira máli en að gera allt sem mest eða sem hraðast.
Mestu máli skiptir að þjálfunin gangi upp í raunveruleikanum. Hún á að passa inn í lífið eins og það er, með vinnu, fjölskyldu og öllu sem fylgir. Þegar þjálfun verður hluti af rútínunni verða framfarirnar bæði stöðugri og varanlegri.
Að lokum snýst þetta ekki bara um útlitið, heldur vellíðan og sjálfstraust í daglegu lífi.
Ég set kröfur á mig að uppfylla þarfir einstaklingsins sem leitar til mín
Menntun
ÍAK Einkaþjálfari
ÍAK Styrktarþjálfari
Menntun og vottun
ÍAK Einkaþjálfari og Styrktarþjálfari síðan 2013. Uppfylli stífar kröfur um fagleg vinnubrögð og aðhald.