Trainer App áskriftin er fyrir þig sem veist nokkurn veginn hvað þú ert að gera í ræktinni en vilt hætta að giska á hvað eigi að gera næst. Þú færð faglegt æfingaprógramm sem gerir æfingarnar þínar skilvirkari og árangursríkari. Prógrammið er byggt á spurningalista um markmið, reynslu og aðstöðu þína. Nýtt prógram berst þér á sex vikna fresti svo líkaminn staðni ekki og hausinn missi ekki áhugann.

Áskriftin hentar þeim sem vilja leiðsögn án mikillar eftirfylgni. Ef þú vilt aftur á móti fá betri þjónustu og eftirfylgni er gott að vita að þú getur uppfært þig í Trainer Standard eða Trainer Premium hvenær sem er. Enginn binditími er á áskriftinni.

Trainer Standard (BRONS!) er fyrir þig ef þú vilt fá persónulega leiðsögn og stuðning til að byggja upp styrk, þol og betri líðan. Þjónustan hentar sérstaklega vel ef þú ert að stíga þín fyrstu skref í ræktinni, ert að koma til baka eftir pásu, eða ert orðin/n leið/ur á sömu rútínunn í ræktinni og vantar ferskt sjónarhorn á þjálfunina þína.

Áskriftin hefst á spurningalista þar sem farið er yfir markmið, reynslu, aðstæður og daglega rútínu. Í framhaldinu færðu út frá svörunum þínum er sett saman æfingarprógram sem byggir á þínum forsendum og þinni rútínu. Á fjögurra vikna fresti er prógrammið endurskoðað og aðlagað eftir framförum og álagi.

Þú heldur matardagbók í Trainer appinu og færð aðstoð við að byggja upp heilbrigðar venjur í matarræði sem virka í þínu daglega lífi. Markmiðið er ekki skammtímalausnir heldur matarvenjur sem þú getur haldið til lengri tíma og finnur að virka með fjölskyldulífi, vinnu og daglegri rútínu.

Þú ert í beinu sambandi við Guðjón í gegnum appið eða tölvupóst. Ef rútínan riðlast eða eitthvað kemur upp á aðlögum við planið saman. Með Trainer Standard fylgir einnig forskráning í einkaviðtöl þegar þau eru í boði, aðgangur að gagnasafni Trainer og innganga í lokað samfélag Trainer viðskiptavina.

Trainer Premium (BRONS!) er fyrir þig sem ert tilbúin/n að skuldbinda þig heilsunni og þjálfuninni næstu þrjá mánuði. Þetta er heildstætt ferli þar sem unnið er með þjálfun, næringu og daglegar venjur samhliða, svo árangurinn skili sér og haldi áfram að skila sér eftir þrjá mánuði. Þriggja mánaða binditími gildir á áskriftinni og takmarkaður fjöldi viðskiptavina er tekinn inn á hverju tímabili.

Áskriftin hentar tveimur hópum sérstaklega vel. Annars vegar þeim sem hafa reynt margt í gegnum tíðina og finnst þeir alltaf vera að leita að skyndilausnum, en vilja loksins byggja upp heilbrigðan lífsstíl sem helst til lengri tíma. Vandamálið hefur sjaldan verið skortur á upplýsingum, heldur skortur á því að einhver fylgi þér eftir í gegnum allt sem þarf til að breyta í alvöru. Hins vegar þeim sem eru komnir langt í þjálfun og vantar fagmann til að taka næstu skref. Hér kemur lotuskipt þjálfun, skipulagðar léttar vikur, ítarleg álagsstýring og dýpri tæknivinna inn í myndina, atriði sem skipta máli þegar þú ert kominn lengra á þína vegferð og vilt halda áfram að taka framförum á öruggan og markvissan hátt.

Samstarfið hefst á ítarlegu upphafsviðtali þar sem markmið eru sett og hvert skref í ferlinu lagt upp. Æfingaprógrammið er byggt utan um þín markmið og endurmetið á fjögurra vikna fresti í samráði við þig.
Þolæfingar eru settar upp eftir þinni daglegu rútínu, álag stillt eftir framvindu og hreyfiferlar yfirfarnir með endurgjöf á tækni.
Þú færð tvö stöðumat í viku sem gerir það að verkum að ekki er hægt að bíða lengi heldur markmið að halda þér á tánum í gegnum allt ferlið.

Næringin er unnin frá grunni. Macros eru reiknaðir út, matardagbók í Trainer appinu, fjölbreyttar uppskriftir og næring sem passar þínum þörfum og rútínu. Vikulegt fræðsluefni dýpkar skilning þinn á þjálfun og næringu, svo þú endir samstarfið með þekkingu sem helst hjá þér til frambúðar. Þú færð aðgang að gagnasafni Trainer og inngöngu í lokað samfélag Trainer viðskiptavina.

Þú færð einnig persónulegt aðgengi að Guðjóni, þjálfara sem er með þér alla leið, hvetur þig áfram og aðlagar planið eftir því sem á þarf að halda í gegnum vinnu, fjölskyldu, ferðalög og álags vikur.